Takk fyrir alveg frábæra og ógleymalega helgi. Vonandi eru allir búnir að jafna sig og ef ekki þá hlítur það bara alveg að fara að gerast.
Ég skemmti mér allavega þræl vel enda hvað annað hægt, skotboltakeppni þar sem stelpurnar rústuðu strákunum (eða allavega man ég það þannig

), svo var ég bókstaflega dregin upp á þak af Palla og og Sverrir, þar sem ég sat svo föst ásamt Ólöfu ( við ákváðum sem sagt að fara ekki sömu leið niður og Begga) og minnstu munaði að það kviknaði í bústaðnum þegar ónefndir aðilar (*hóst* svenni) ákváðu að bæta aðeins grillvökva á grillið, með þeim afleiðingum að Ingvar þarf ekki að hafa áhyggjur að hárvexti á handleggjum í nokkrun tíma

. Svo má ekki gleyma hápunkti kvöldsins eða salsa kennslu M&M þar sem þau stóðu sig svona líka vel og kenndu okkur spor sem eiga eftir að koma að góðum notum á götum bæjarins

Ég tók nú ekki þátt í ''ég hef aldrei'' leiknum, vildi ég ekki koma ykkur öllum til að roðna, en þar voru víst sagðar ansi skrautlegar sögur, heyrði orðið dvergur frá einhverjum, man nú reyndar ekki frá hverjum
Mér langar bara að þakka öllum fyrir frábæran dag og nótt og við verðum að endurtaka þetta fljótlega með hittingi í Reykjavík (enda vilja strákarnir örugglega fá að verja heiður sinn í skotboltanum fljótlega

)
Svo er líka smá pæling að hafa smá video kvöld, þar sem helgin var auðvitað tekin upp á video en það kemur í ljós seinna.
knús á alla :*
Inga
p.s. er með bleikan victoria secret galla sem einhver gleymdi, eigandin má endilega vera í sambandi við mig